-
Hengifoss Snaefell Vatnsdalur 05
-
Hengifoss Snaefell Vatnsdalur 01
-
Hengifoss Snaefell Vatnsdalur 02
-
Hengifoss Snaefell Vatnsdalur 03
-
Hengifoss Snaefell Vatnsdalur 04
Um Vatnsdal
Falleg gönguleið norðaustan við Snæfell liggur um dalverpið á milli Nálhúshnjúka, Sandfells og Vatnskolls sem geymir lítið stöðuvatn sem Hölkná fellur úr til norðurs. Stikuð leið liggur á milli bílastæða við Hölkná að norðan og á Snæfellsnesi að austan. Mikilvægt er að fylgja göngustígnum því að dýjamosinn í Vatnsdal er afar viðkvæmur.
Vegalengd: 5,2 km.