Upphaf er við Ufsárlón á Eyjabökkum, rétt austan við brúna yfir Jökulsá í Fljótsdal. Vinsamlegast lokið hliðinu á eftir ykkur. Leiðin er mjög greinileg og liggur að mestu með girðingunni austan við Jökulsá og trackið endar við bæinn Glúmsstaðasel. Þar er hægt að fara yfir ánna á kláf og t.d. hjóla áfram út í Óbyggðasetur.
Leiðin er að mestu miðlungserfið en í henni eru mýrarkaflar sem geta verið erfiðir en eru ekki langir. Það eiga ekki að vera neinar sérstakar hættur á leiðinni en við biðjum fólk ávallt að gæta fyllsta öryggis og sérstaklega ef farið er fram á gilbrúnina til náttúruskoðunar.
Hægt að afla frekari upplýsinga hjá Hel-Fjallahjólaleiðum í Fljótsdal - (
sjá hér)